Höfðaskóli
Felix Bergson kom í heimsókn
Frá foreldrafélaginu
Takk fyrir komuna
Við í Höfðaskóla viljum færa öllum þeim sem heimsóttu okkur á opna húsið fimmtudaginn 22. október kærar þakkir fyrir komuna.
Það var einstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir gáfu sér tíma til að líta við, kynna sér fjölbreytt verkefni nemenda og taka þátt í því líflega starfi sem fram fór í skólanum.
Opið hús í Höfðaskóla
Fimmtudaginn 22. október verður opið hús í Höfðaskóla frá kl. 15:00 til 17:00. Við bjóðum foreldra, fjölskyldur og aðra áhugasama hjartanlega velkomna í heimsókn!
Vond veðurspá
Sæl öll
Það hefur líklegast ekki farið framhjá neinum að veðurspáin er ansi slæm fyrir morgundaginn, miðvikudaginn 14.október, sérstaklega milli  kl. 10:00 og 14:00.
Nemendur borða hádegisverð í Höfðaskóla en ekki Fellborg vegna þessa.
Hjá nemendum á yngsta stigi lýkur kennslu kl. 12:00 og svo er matur til 12:40, eftir það tekur frístund við. Sækja þarf þá nemendur sem ekki eru í frístund.
Hjá nemendum á miðstigi lýkur kennslu kl. 14:00 og eru foreldrar beðnir um að sækja börnin sín.
Hjá nemendum á unglingastigi lýkur kennslu kl. 14:00 og eru foreldrar beðnir um að sækja börnin sín.
Enginn nemandi verður látinn labba heim úr skólanum á morgun.
Höfðafréttir í lok fyrstu námslotu skólaárið 2026-2027
Sæl öll
Eins og á síðasta skólaári er nú búið að skipta skólaárinu í lotur, þær eru sex talsins og varir hver lota í sex vikur. Í lok hverrar lotu er námsmat og í þetta sinn voru líka foreldrafundir. Stíf dagskrá er í öllum bekkjum og má skoða námsvísi skólans hér ásamt því að fylgjast með þróunarverkefni skólans þetta skólaárið en það er námsmat.
Fyrsta lotan er búin og önnur lota hófst í gær, 8. október.
Margt hafa nemendur brallað í þessari fyrstu lotu og hér á eftir fer upprifjun af því helsta.
Á degi íslenskrar náttúru nutu nemendur skólans útivistar.
Á valgreinadegii unglingastigs koma saman nemendur í 8.-10. bekk frá Skagaströnd, Hvammstanga og úr Húnabyggð, dagurinn var að þessu sinni haldinn hér og heppnaðist afskaplega vel.
Við erum svo heppin að vera í mjög góðri samvinnu við NES listamiðstöð og er listafólk þegar farið að koma hingað uppeftir og kenna í samvinnu við list og verkgreinar hjá Kristbjörgu Dúfu.
Förustafirnir í 4.bekk dafna vel og hefur töluverð fjölgun átt sér stað, gestir og gangandi ávallt velkomin að kíkja við og kynnast þessum furðudýrum.
Framundan er fjölbreytt dagskrá og má þar nefna að Opið hús, Felix Bergsson mun líta við, Páll Óskar ætlar líka að kíkja á okkur og svo verður vetrarfrí föstudaginn 6. nóvember og mánudaginn 9. nóvember. Skúnaskrall, baranmenningarhátíð Norðurlands vestra stendur fyrir mörgum viðburðum á þessu tímabili.
Mánudaginn 26.október verður síðasti sundtími haustannar og byrjar sundkennsla aftur mánudaginn 1.mars.
Dagur íslenskrar náttúru
Í tilefni af degi náttúrunnar létu nemendur í 4. bekk smá rigningu og rok ekkert á sig fá. Þau klæddu sig bara í pollagallana og fóru í leiðangur þar sem þau rannsökuðu hinar ýmsu plöntur og sveppi sem leynast í nágrenninu.
Allt sem vakti áhuga var sett í poka og tekið með inn í skólastofu, tegundir greindar og nemendur búa til flott veggspjald þar sem þau munu segja frá öllu sem þau fundu.
Nemendurnir virkjuðu líka önnur skilningarvit; þau fundu ólíka lykt af náttúrunni og hlustuðu vel á hljóðin í umhverfinu.
Fjölgun í fjórða bekk
Treyjudagurinn föstudaginn 4.september
Föstudaginn 4.september er Treyjudagurinn en þá klæðist fólk uppáhalds íþróttatreyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Við hvetjum alla til að mæta í uppáhalds íþróttatreyjunni sinni.
Skráning í frístund og hádegismat
Mikilvægt er að skrá nemendur í hádegismat til að auðvelda matráð að áætla innkaup og eldun.
Skráning í hádegismat
Starfsmenn frístundar taka á móti nemendum við lok kennslu eða þegar komið er úr hádegismat, eftir því sem við á og eru með þeim til kl. 16:00.
Hádegisverður er kl. 12:00-12:40 alla daga.
Síðdegishressing er frá kl. 14:30-15:00.
Starfsmenn frístundar eru: Daniela Esme og Ílóna Sif
Skólasetning Höfðaskóla haustið 2026
Senn líður að því að skóli hefjist á ný eftir sumarfrí og verður skólasetning með sama hætti og undanfarin ár.
Skólasetning fyrir skólaárið 2026-2027 fer fram þriðjudaginn 25. ágúst 2026, nemendur mæta beint í skólann í sínar heimastofur og eru foreldrar/forráðamenn beðnir um að mæta með þeim.
Við gerðum örlitlar breytingar á hópaskiptingum fyrir komandi skólaár, en hóparnir og tímasetningar á skólasetningu eru sem hér segir:
1.-3. bekkur - 9:00-9:30 í Dvergasteini
4. bekkur- 9:30-10:00 í Glaumbæ
5.-7. bekkur - 10:00-10:30 í Villingaholti
8.-10. bekkur - 10:30-11:00 í Skýjaborg
Umsjónarkennarar í ár verða:
1.-3. bekkur - Vigdís Elva
4. bekkur - Kristbjörg Dúfa
5.-7. bekkur - Halla María
8.-10. bekkur - Ástrós og Gigga
Elva kennir stærðfræði í 5.-10. bekk
Gísli kennir ensku í 4.-10. bekk
Jenný kennir dönsku í 6.-10. bekk
Deildarstjóri stoðþjónustu er Berglind Hlín.
Frístund verður starfrækt eins og undanfarin ár og er hún í boði fyrir nemendur í 1.-4. bekk eftir að kennslu lýkur á daginn. Starfsmenn frístundar verða þær Esme og Ílóna. Frístund stendur öllum nemendum í þessum bekkjum til boða endurgjaldslaust út ágúst en frá 1. september hafa aðeins skráðir nemendur aðgang.
Hádegismatur er gjaldfrjáls og ávaxtastund verður alla daga vikunnar. Mikilvægt er að skrá nemendur í mat þó að ekki þurfi að greiða fyrir hann og mikilvægt er að nemendur mæti í hádegismat þá daga sem skráðir eru til að forðast matarsóun.
Sund verður kennt á mánudögum í september, október, mars, apríl og maí.
Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna.
Foreldrar/forráðamenn verðandi 1. bekkinga munu heyra frá umsjónarkennara áður en skólasetning fer fram.
Skólaárið 2026-2027 hefst 25. ágúst 2026.
Ég hlakka til samstarfsins með ykkur í vetur og segi Höfðaskóla settan.
Kær kveðja,
Guðrún Elsa Helgadóttir
Skólaslit Höfðaskóla
Síðasta föstudagskveðja skólaárið 2025-2026
Sæl öll
Þá er komið að síðustu föstudagskveðju skólaárið 2025-2026.
Vikan hefur aldeilis verið fjölbreytt hjá okkur
Nemendur 9. og 10. bekkjar hafa notið sólar og strandar á Ítalíu og eru væntanleg heim í nótt.
Mánudaginn fóru nemendur í sundstuð í sundlauginni okkar.
Þriðjudaginn var farið í vorferð í Skagafjörðinn, leikið í Litla skógi, Glaumbær heimsóttur og svamlað í sundlauginin í Varmahlíð. (myndir hér)
Miðvikudaginn héldu allir nemendur að sandlæk þar sem grillaðir voru sykurpúðar og vaðið eins langt og hver og einn þorði. (myndir hér)
Fimmtudaginn var ratleikur þar sem nemendur þeyttust um allan bæ og leystu hinar ýmsu þrautir. (myndir hér)
Föstudaginn var haldið inn að Hrafná. (myndir hér)
Eins og sjá má var aldeilis ekki leiðinlegt.
Í næstu viku verður flippíþróttadagur á mánudaginn og útivistardagur á þriðjudaginn.
Við vonum að þið njótið sjómannadagshelgarinnar
Með góðum kveðjum
Gjöf til Höfðaskóla
Höfðaskóla barst á dögunum höfðingleg gjöf frá Jouni, góðum nágranna okkar. Hann færði okkur uppstoppaða súlu og mink.
Dýrunum verður komið fyrir í sýningarskápum á göngum skólans, til að nemendur og aðrir geti notið þeirra.
Laus störf í Höfðaskóla
Föstudagskveðja
Sæl öll
Þá er nú skólaárið aldeilis farið að styttast í annan endann, námsmati er lokið og skólaslit eru þriðjudaginn 9.júní kl. 14:00 í Hólaneskirkju.
Nemendur 9. og 10. bekkjar leggja af stað í skólaferðalag til Ítalíu aðfaranótt 30.maí og munu dvelja þar í hita og vellystingum til 5.júní.
Við hin sem heima sitjum ætlum nú samt ekki að láta okkur leiðast. Við ætlum að skella í sundlaugarpartý, fara í vorferð yfir í Skagafjöðinn, sprella úti á sandlæk, fara í ratleik og fleira og fleira.
Við óskum ykkur góðrar helgar
Höfðaskóli fær 20 fartölvur að gjöf
Í vetur sótti Höfðaskóli um styrk hjá Forriturum framtíðarinnar og fengum við þær gleðilegu fréttir í morgun að styrkumsóknin var samþykkt.
Styrkurinn felst í 20 notuðum fartölvum sem Landsbankinn gefur og munu þær nýtast í kennslu á unglingastigi skólans.
Við erum afar þakklát fyrir þessa góðu gjöf og hlökkum til að taka tölvurnar í notkun með nemendum.
Föstudagskveðja
Heil og sæl öll
Enn ein löng helgi framundan þar sem annar í hvítasunnu er á mánudaginn og frí í skólanum.
Í vikunni var ýmislegt brallað eins og sjá má á heimasíðu skólans og má þar nefna að nemendur í 3. og 4. bekk fóru í og heimsóttu dýrin hennar Dagnýjar uppá Kerlingarholti. Nemendur 1.bekkjar fengu hjólahjálma gefist frá Kiwanisklúbbnum Drangey og myndir af þeirri samvinnu sem hefur verið milli nemenda á yngsta stigi og miðstigi skólans.
Til viðbótar má nefna að fulltrúar UMFÍ komu og kynntu unglingalandsmótið sem haldið verður á Sauðárkróki þetta árið. Allir nemendur í 5.-10. bekk sátu kynninguna og fengu bækling. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur unglingalandsmótið og þær íþróttagreinar sem keppa á í.
Foreldrar og nemendur 9. og 10. bekkjar komu á stuttan fund í gær þar sem það styttist óðum í Ítalíuferðina og ekki er laust við að fiðrings gæti meðal nemendahópsins.
Fermingar eru um helgina og óskum við fermingarbörnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn.
Með von um góða helgi, sjáumst á þriðjudaginn
Samvinna nemenda á miðstigi og yngsta stigi skólans
Góð samvinna í námi og leik hefur myndast milli nemenda á yngsta stigi skólans og miðstigi.
Nemendur 1.bekkjar fengu hjálma að gjöf
Í dag komu fulltrúar Kiwanisklúbbsins Drangeyjar og færðu öllum nemendum 1. bekkjar reiðhjólahjálma og grilluðu fyrir þau pylsur.
Nú er runninn upp tími reiðhjóla, hlaupahjóla, hjólabretta og línuskauta og mikilvægt að hjálmur sitji á hverju höfði. Það voru glaðir krakkar sem tóku á móti þessari góðu gjöf hér í dag.