Dagur íslenskrar náttúru 16.sept

Fátt hefur mótað íslenska þjóð eins og náttúran. Íslendingar hafa aðlagað líf sitt samspili elds og ísa, dyntóttum veðurguðum og kröftugum sjávarföllum. Um leið hafa þeir notið alltumlykjandi náttúrufegurðar og haft lífsviðurværi sitt af ríkulegum gjöfum náttúrunnar.
 
Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðilegur 16. september ár hvert og að því tilefni fóru nemendur á yngsta stigi í göngutúr og skoðuðu sitt nánasta umhverfi.