Sæl öll
Í vikunni var ýmislegt brallað, ný valgrein hófst á unglingastigi og nú fara allir í 8.-10.bekk í leiklist. Nemendur á unglingastigi hafa lesið Gunnlaugs sögu ormstungu. Það hefur verið gaman að fylgjast með nemendum rýna í þennan merka bókmenntaarf. Það er ekki sjálfgefið að takast á við fornt málfar og fornar hefðir en nemendur hafa sýnt að þau búa yfir góðum skilningi og getu til að setja söguna í samhengi við nútímann.
Nemendur í 1. og 2. bekk héldu upp á afmæli Blæs en Blær er táknmynd Vináttu sem er forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti. Hann minnir okkur á gildi Vináttu, veitir huggun og er hvatning til barnanna að tjá sig og segja sínar skoðanir. Dagurinn hófst á skapandi nótum þar sem krakkarnir útbjuggu fallegar myndir af Blæ, kórónur og skrautlegar grímur. Sköpunargleðin var í fyrirrúmi og andrúmsloftið fyllt eftirvæntingu. Eins og í öllum góðum veislum var svo gætt sér á ljúffengum kökubita í lokin. Þetta var notaleg samverustund þar sem nemendur sýndu bangsanum sínum mikla hlýju og vináttu og sköpunargleðin réð ríkjum.
Í næstu viku byrjum við á skipulagsdegi og svo eru foreldraviðtöl á þriðjudaginn. Foreldrar skrá sig sjálf í viðtölin á namfus.is en geta líka haft samband við skólann og beðið um aðstoð við skráningu.
Áfram Ísland HÚH
Með góðri kveðju
Guðrún Elsa og Berglind Hlín
|
Höfðaskóli |
Íþróttahús |
Tónlistarskóli
Ábendingar og fyrirspurnir |