Föstudagskveðja

Febrúar er genginn í garð og eins og undandarið þá hefur veðrið leikið við okkur. Krakkarnir voru heldur betur ánægð með snjóinn í morgun. 

Starfsdagur og foreldraviðtalsdagur voru í byrjun vikunnar. Kennarar fengu fræðslu um framfarastiga í námi og kennslu sem og gerð kennslu og námsáætlana. Við þökkum foreldrum fyrir komuna, ávallt gott að hittast og ræða málefni nemenda. 

Næsta vika er stutt í annan endan þar sem nemendur og starfsfólk eru á leið í vetrarfrí, 13., 16. og 17. febrúar. Við komum svo endurnærð til baka og skellum okkur þá beint í öskudagsgleði. 

Í næstu viku ætlum við að vera með lítið þorrablót á þriðjudaginn í kaffitímanum og fá þá nemendur að smakka aðeins af hinum helstu þorraréttum.

Við vonum að þið njótið helgarinnar
Með góðum kveðjum
Guðrún Elsa og Berglind Hlín