Heil og sæl
Vikan var stutt hjá okkur, aðeins þrír skóladagar eftir gott vetrarfrí.
Hingað í skólann mættu svo hinar ýmsu furðuverur á miðvikudaginn, öskudag, og var kennslu slitið klukkan 12:00 og héldu nemendur þá af stað í söng leiðangur um samfélagið. Foreldrafélög leik- og grunnskólans stóðu svo fyrir öskudagsskemmtun í félagsheimilinu Fellsborg og er ekki annað að heyra á nemendum en að þau hafi skemmt sér mjög vel.
Myndir hér.
Nemendur í 1. og 2. bekk skelltu sér í leiðangur í góða veðrinu í morgun og skoðuðu spjallbekkinn fyrir víkina ásamt því að rifja upp gamla takta og leika sér á lóð leikskólans.
Myndir hér.
Næsta vika er síðasta vika febrúarmánaðar og eina vika mánaðarins þar sem eru fimm heilir skóladagar.
Nemendur 10.bekkjar halda yfir á Sauðárkrók fimmtudaginn 26.feb og heimsækja FNV. Skoða skólann, fræðast um námsframboð og lýkur heimsókninni með leiksýningunni Stella í orlofi í uppsetningu nemendafélags FNV.
Föstudaginn 27. febrúar verður glitrandi dagur í Höfðaskóla en þann dag ætlum við að glitra með Einstökum börnum og vekja þannig athygli á degi sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna. Á
heimasíðu Einstakra barna má finna ýmsar upplýsingar sem gott er fyrir öll að kynna sér.
Við vonum að þið njótið helgarinnar
Með góðum kveðjum
Guðrún Elsa og Berglind Hlín