Föstudagskveðja

Nemendur 10.bekkjar heimsóttu FNV, skoðuðu skólann og heimavistina og kynntu sér námsframboð ásamt því að sjá leiksýninguna Stella í orlofi - frábær heimsókn eins og alltaf takk fyrir okkur FNV.

Risjótt veður, en snjórinn gleður krakkana og rassaþoturnar hafa verið mikið notaðar í vikunni. Nemendu frístundar duttu í lukkupottinn þegar þau voru að renna sér í gær og gátu fylgst með steypuvinnu í leiðinni, sem reyndist hin mesta spenna. Myndir hér.

Glitruðum í dag, bæði nemendur og starfsfólk, til að sýna stuðning og samhug með Einstökum börnum.Meiri upplýsingar hér.

Í næstu viku hefst fimmta námslota vetrarins. Námsmat fer að detta inn hjá nemendum og nýjar námslotur að verða fljótlega tilbúnar og fara þær inn í námsvísi skólans í næstu viku.

Síðastliðin tvö ár hefur 7.mars verið íþróttatreyjudagur hér í skólanum og ætlum við að halda þeirri hefð en færa daginn fram um einn og hafa hann þetta árið 6.mars.

Að lokum viljum við minna á að dyr skólans eru ávallt opnar. Það er okkur mikil ánægja að fá fólk úr samfélaginu í heimsókn til að fylgjast með því flotta starfi sem nemendur okkar inna af hendi dag frá degi. Þið eruð hjartanlega velkomin að kíkja við og þiggja kaffisopa.

Með góðri kveðju
Guðrún Elsa og Berglind Hlín