Heil og sæl
Þá er kominn mars.
Fjölbreytt vika að baki, dálítið rót þar sem iðnaðarmenn voru hér að setja upp hljóðdempandi kerfisloft og LED lýsingu í kennslustofur unglingastig, miðstig og hjá nemendum á yngsta stigi.
Íþróttatreyjudagurinn var í dag, skemmtilegt að sjá mismunandi lið, íþróttir og liti, fjölbreytnin var frábær.
Fjórða námslota Höfðaskóla er að byrja. Í námsvísi skólans kemur fram hvaða grunnþáttúr úr Aðalnámskrá Grunnskóla verið er að vinna með og hvaða áhersluþættir eru þar undir. Samþættingarverkefni lotunnar ber nafnið Ferðalag. Bekkjarhóparnir munu einhverjir læra um okkar ylhýra Ísland og aðrir halda út fyrir landsteinana og leggja jafnvel í heimsreisu.
Þriðjudaginn 10.mars verður haldin umfangsmikil netfræðsla fyrir bæði nemendur og foreldra á vegum foreldrafélagsins og Heimilis og skóla. Síðdegis, á milli kl. 17:00 og 19:00, er svo boðað til mikilvægrar samveru fyrir foreldra þar sem unnið verður með Farsældarsáttmálann. Dagskráin hefst á 30 mínútna kynningu og í kjölfarið verða vinnustofur í heimastofum hvers bekkjar. Markmiðið er að halda samtali milli foreldra um farsæld barna áfram: hvað er okkur mikilvægt í uppeldi barna? Dæmi geta verið skjátími, útivistartími, samskipti, leik barna og fleira. Við hvetjum til mætingar, málefnið er brýnt.
Íþróttadagur yngsta stigs verður næstkomandi miðvikudag, 11.mars, en það er Finnbogi íþróttakennari ásamt starfsfólki frístundar sem sjá um það.
Skólinn ásamt Fram eru að undirbúa skíðaferð og berast upplýsingar um leið og dagsetning liggur fyrir.
Með góðum kveðjum
Guðrún Elsa og Berglind Hlín
|
Höfðaskóli |
Íþróttahús |
Tónlistarskóli
Ábendingar og fyrirspurnir |