Kæru foreldrar og forráðamenn,
Að baki er annasöm vika.
Hjá nemendum í 4.–10. bekk hefur vinnan við Matsferil Menntamálastofnunar verið í forgrunni. Lagt er mat á lesskilning og stærðfræði og hafa sumir hópar þegar lokið sínum prófum á meðan aðrir eiga þau eftir. Við höfum til loka marsmánaðar til að ljúka þessum prófum.
Á yngsta stigi ríkti mikil gleði og eftirvænting í vikunni. Finnbogi undirbjó sérstakan íþróttadag þar sem nemendur fóru í íþróttahúsið og skemmtu sér konunglega ásamt starfsmönnum frístundar. Þá vakti það gríðarlega lukku þegar yngstu nemendurnir fengu að heimsækja geiturnar hennar Dagnýjar. Myndir hér
Við viljum einnig deila því með ykkur að framkvæmdir innanhúss ganga vonum framar. Smiðir eru nú nánast búnir að setja upp nýtt kerfisloft og LED lýsingu í allar kennslustofur, ásamt því að endurnýja lýsingu í eldhúsi, matsal og í forstofu nemenda. Þetta mun bæta vinnuumhverfi barnanna til muna og skapa bjartara og þægilegra námsumhverfi.
Fram undan er spennandi vika. Á fimmtudaginn næstkomandi fer unglingastigið í heimsókn á Hvammstanga. Þar verður haldinn sameiginlegur valgreinadagur þar sem nemendur frá Skagaströnd, Blönduósi og Hvammstanga hittast og vinna saman að skemmtilegum verkefnum. Þetta er frábært tækifæri fyrir nemendur til að efla félagsleg tengsl og kynnast jafnöldrum sínum á svæðinu.
Sama dag, fimmtudaginn, verður tvöfaldur vinnudagur hjá starfsfólki Höfðaskóla. Unnið verður til klukkan 19:00 og fá starfsmenn í staðinn frí 24. apríl næstkomandi.
Að lokum viljum við minna á að undanfarna daga hefur verið mikill snjór og bleyta utandyra. Þar sem börnin eru dugleg að fara út er mjög gott að þau hafi auka sokka og jafnvel auka vettlinga með sér í skólann svo þau geti verið þurr og hlý allan daginn.
Við þökkum ykkur fyrir gott samstarf og óskum ykkur gleðilegrar helgar.
Guðrún Elsa og Berglind Hlín
|
Höfðaskóli |
Íþróttahús |
Tónlistarskóli
Ábendingar og fyrirspurnir |