Enn ein vikan í skólastarfinu er senn á enda, mars meira en hálfnaður og páskarnir handan við hornið.
Í vikunni hafa veðurguðirnir svo sannarlega látið að sér kveða. Við höfum upplifað allt frá mikilli rigningu og asahláku yfir í frost og snjókomu á víxl, sem hefur krafist þess að allir væru vel búnir og tilbúnir í margvísleg útiveruævintýri.
Vegna þessa ófyrirsjáanlega veðurfars þurftum við að aflýsa fyrirhugaðri ferð unglingastigsins á valgreinadag á Hvammstanga síðastliðinn fimmtudag. Við höfum þegar hafið vinnu við að finna nýja dagsetningu og munum auglýsa hana um leið og hún liggur fyrir.
Varðandi næstu viku þá eru nokkrar breytingar á áður auglýstri dagskrá. Við höfum ákveðið að fresta list- og verkgreinavikunni sem átti að fara fram í næstu viku. Okkur þykir mikilvægt að vanda vel til verka í þeirri vinnu og höfum því fært vikuna fram á vorið þar sem hún fær betra svigrúm. Ný dagsetning verður kynnt nemendum og foreldrum síðar.
Á mánudaginn næstkomandi stendur til að fara í skíðaferð í boði ungmennafélagsins Fram. Við erum afar þakklát fyrir þetta frábæra framtak og vonumst til þess að sem flestir geti notið þess að vera á skíðum í góðum félagsskap. Við krossum nú fingur og vonum að veðrið verði okkur hliðhollt svo þessi dagur verði sem ánægjulegastur fyrir börnin.
Við þökkum ykkur kærlega fyrir gott samstarf og óskum ykkur góðrar helgar
Guðrún Elsa og Berglind Hlín
|
Höfðaskóli |
Íþróttahús |
Tónlistarskóli
Ábendingar og fyrirspurnir |