Kæru foreldrar og forráðamenn,
Að baki er óvenju stutt vika í skólastarfinu okkar. Þriðjudaginn sl. snéru nemendur og starfsfólk úr páskafríi. Það fór ekki á milli mála að nemendur höfðu notið hvíldarinnar og sum enn hálf súkkulaðihúðuð.
Aðeins rofaði til milli gulra veðurviðvarana og nýttum við dagana til að vera mikið úti.
Fram undan er spennandi vika þar sem mánudaginn 13. apríl munum við halda skólaskákmót hér í Höfðaskóla fyrir alla þá nemendur sem hafa áhuga á að spreyta sig við taflborðið.
Teflt verður í þremur einstaklingsflokkum og er dagskráin eftirfarandi:
Umhugsunartími á hverja skák verður 5 mínútur að viðbættum 2 sekúndum á hvern leik. Tveimur efstu keppendum úr hverjum flokki stendur til boða að fara áfram og keppa fyrir hönd skólans á Meistaramóti Norðurlands vestra í skólaskák. Það mót fer fram miðvikudaginn 15. apríl í Húnaskóla á Blönduósi.
Nemendur eru farnir að mæta á reiðhjólum í skólann og minnum við á að ávallt eiga reiðhjólahjálmar að vera með í för.
Með óskir um góða helgi
Guðrún Elsa og Berglind Hlín
|
Höfðaskóli |
Íþróttahús |
Tónlistarskóli
Ábendingar og fyrirspurnir |