Föstudagskveðja

Mynd af farseðlum úr þemavinnu nemenda á miðstigi
Mynd af farseðlum úr þemavinnu nemenda á miðstigi

Sæl öll

Mánudagurinn hófst á innanhúsmóti í skák en þar kepptu nemendur 1.-4.bekkjar, 5.-7.bekkjar og 8.-10.bekkjar (myndir hér) um sæti til að komast áfram á Meistaramót Norðurlands vestra í skólaskák sem haldið var í Húnaskóla miðvikudaginn sl. Fjórir nemendur, Katrín Sara,  fóru frá Höfðaskóla og komst Elís Valtýsson á pall en hann var í 2.-4. sæti meðal nemenda í 1.-4. bekk. (myndir hér)  Nemendum skólans fannst þetta skemmtilegt og sjáum við fram á að gera þetta að árlegum viðburði og flétta skák meira í nám nemenda okkar.

Nemendur miðstigs voru með kynningu fyrir forráðafólk á þemaverkefni sem ber heitið "Ferðalag". Var þar hægt að koma og sjá verkefnin þeirra, skipulag utanlandsferða og nákvæma kostnaðaráætlun. (myndir hér)

Nemendur 10. bekkjar fengu frábæra kennslu hjá Herdísi Steinsdóttur og Grigory Solomatov á vísindadegi í Biopol í gær. Nemendurnir unnu í tölvuleikjakóðun og örverufræði. Frábært samstarf og þökkum við kærlega fyrir. Vonandi verða verkefni sem þessi áregur viðburður. 

Það var vor í lofti þessa vikuna og voru nemendur skólans dugleg að vera utandyra eins og sjá má á myndunum sem teknar voru að nemendum yngsta stigs þegar þau fóru í göngutúr inn að á. (myndir hér) 

Næsta vika verður stutt og laggóð, sumardagurinn fyrsti er fimmtudaginn 23.apríl og starfsdagur föstudaginn 24.apríl. 

Með óskum um góða helgi
Guðrún Elsa og Berglind Hlín