Föstudagskveðja

Heil og sæl 

Stutt vika að líða en uppstigningardagur var í gær, fimmtudaginn 14. maí. 

Nemendur á miðstigi, myndir hér, fóru í morgunsárið á Kjalarland og nemendur á yngsta stigi, myndir hér, fór í fjárhúsin til Jóns Heiðars og Kristínar Birnu. Hóparnir fengu að gumsast aðeins í sveitinni. Hittu þar lömb og ýmiskonar ungviði. Við þökkum kærlega fyrir okkur. 

Nemendur Höfðaskóla eru farin að telja niður í sumarfrí en skólaslit eru 9. júní.  Nemendur 9. og 10. bekkjar eru hinsvegar farin að telja niður í nemendaferðina sína. Ferðinni er heitið til Ítalíu, nánar tiltekið til Marina di Massa og fljúga þau á vit ævintýra 30.maí næstkomandi.

Veðrið hefur leikið við okkur, nemendur orðin útitekin og hjólin orðinn fararskjóti, af því tilefni minnum við á hjálma. 

Með von um góða helgi
Guðrún Elsa og Berglind Hlín