Föstudagskveðja á miðvikudegi

Sæl öll

Föstudagskveðja á miðvikudegi. Stutt vika þar sem sumardagurinn fyrsti er á morgun, fimmtudaginn 23.apríl, og skipulagsdagur föstudaginn 24.apríl. Nemendur mæta aftur í skólann 27.apríl.

Veðrið hefur verið einstaklega gott þessa þrjá skóladaga og nemendur notið þess að vera utandyra. 

Ólátabelgurinn var vakinn í vikunni og það vakti heldur betur mikla lukku. 

Ný lota hefst í næstu viku og fer að detta inn námsmat úr síðustu lotu til nemenda sem og kennsluáætlanir í námsvísi skólans. 

Næsta vika er einnig en frí er föstudaginn 1.maí.

Gleðilegt sumar og njótið helgarinnar
Guðrún Elsa og Berglind Hlín