Síðasta vikan fyrir páskafrí var lífleg og skemmtileg hjá okkur. Nemendur unnu ýmis verkefni myndir hér og föndruðu páskaskraut. Myndir hér.
Við skunduðum af stað í Tindastól sl. mánudag og renndum okkur þar á hverskyns skíðabúnaði. Nemendur skemmtu sér mjög vel og stefna mörg að því að skella sér aftur á skíði um páskana. Við þökkum Fram kærlega fyrir og þökkum foreldrunum sem gátu gefið sér tíma og farið með einnig kærlega fyrir. Myndir hér
Í dag var páskabingó fyrir alla nemendur skólans og voru vinningarnir páskaegg sem Samkaup úrval á Skagaströnd og Skagfirðingabúð á Sauðárkróki sem gáfu vinninga og þökkum við þeim kærelga fyrir. Myndir hér
Við höldum svo í páskafrí eftir daginn í dag og mætum aftur í skólann þriðjudaginn 7. apríl.
Við vonum að þið eigið góða páska og hlökkum til að hitta nemendur endurnærð eftir gott frí
Með páskakveðju
Guðrún Elsa og Berglind Hlín
|
Höfðaskóli |
Íþróttahús |
Tónlistarskóli
Ábendingar og fyrirspurnir |