Fyrsti snjór vetrarins

Í morgun var fyrsti snjór vetrarins mættur. Það var mikið fjör í frímínútunum þegar nemendur fóru út á skólalóðina. Margir nýttu tækifærið og fóru í snjókast, gerðu snjókarla og snjóengla. Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru úti í morgun.