Glitraðu með einstökum börnum

Föstudaginn 27. febrúar verður glitrandi dagur í Höfðaskóla en þann dag ætlum við að glitra með Einstökum börnum og vekja þannig athygli á degi sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna. Á heimasíðu Einstakra barna má finna ýmsar upplýsingar sem gott er fyrir öll að kynna sér. 

"Glitraðu með okkur með því að klæðast einhverju glitrandi eins og glimmeri eða pallíettum. Allt sem er litríkt og glitrar er skemmtilegt og minnir okkur á að við erum allskonar"