Lokun skóla fram að helgi

Sæl og blessuð

Eins og allir vita geta hlutirnir breyst hratt á þessum skrítnu tímum. Upp er kominn grunur um Covid-19 smit í Höfðaskóla og því hefur verið tekin ákvörðun um að færa kennslu alfarið yfir í fjarkennslu frá og með morgundeginum 25. mars. Mun það fyrirkomulag vara á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr sýnatöku.

Umsjónarkennarar munu senda frekari leiðbeiningar heim og deila nauðsynlegum upplýsingum í tölvupósti.

Búið er að taka saman öll þau gögn sem nemendur þurfa að hafa með sér heim og gefst foreldrum kostur á að nálgast þau í skólanum til kl. 16:00 í dag.

Þeir sem ekki hafa tök á að sækja gögnin mega gjarnan senda tölvupóst á saradilja@hofdaskoli.is eða gudrunelsa@hofdaskoli.is og við munum eftir fremsta megni reyna að koma gögnunum til nemenda.

Frekari upplýsingar verða sendar í tölvupósti og birtar á heimasíðu eftir atvikum. Við biðjum ykkur um að sýna stillingu þar sem enn er ekkert staðfest smit á Skagaströnd og er um varúðaráðstafanir að ræða.

Ekki hika við að hafa samband við okkur ef spurningar vakna. Eins bendum við á að það má hafa samband við Sigríði skólahjúkrunarfræðing í síma 7741434.

Kærar kveðjur
Sara Diljá og Guðrún Elsa