Menntabúðir

Kæru foreldrar, forráðamenn og aðrir velunnarar skólans.

Við hér í Höfðaskóla erum himinlifandi með frábæra mætingu á menntabúðirnar sem haldnar voru í gær, stuðningur ykkar og áhugi á skólastarfinu skiptir okkur öll máli.

Mikil þekking og reynsla í upplýsingatækni og tækniþróun er til staðar hjá nemendum Höfðaskóla eins og sjá mátti á þeim tæplega 40 stöðvum sem nemendur í 1.-10.bekk settu upp og í gær og fögnum við því tækifæri að geta deilt hugmyndum og reynslu með því að sýna, sjá og ræða saman. Tæknin gerir skólastarfið fjölbreyttara og þau verkfæri og þekking sem hlotnast er oft mögnuð.

Undir myndunum er svo hægt að afrita slóð til að nálgast það app eða  þá síðu sem verið var að kynna.

Myndir hér