Menntabúðir og opið hús

Mánudaginn 11. desember voru menntabúðir og opið hús hjá okkur í Höfðaskóla.
Nemendur kynntu bæði verkefni og ýmsar aðferðir sem þau nota í verkefnavinnu fyrir gestum og gangandi. 

Að venju var viðburðurinn vel sóttur og þökkum við öllum sem komu kærlega fyrir komuna. Það gleður okkur alltaf mikið þegar fólk gefur sér tíma í dagsins önn til að stoppa við hjá okkur og sjá afrakstur mikillar vinnu hjá nemendum. 

Fleiri myndir hér.