Myndmennt

Við erum búin að bralla ýmislegt síðustu vikur í myndmennt.
 
Yngri hópur Málaði vatnslitaverk og prófuðu að blanda salti við vatnsliti. Þau æfðu sig í að gera mósaík list, lærðu prentunar aðferð með því að mála á lego kubba og stimpla á blað. Þau horfðu á nokkrar teiknaðar stuttmyndir og teiknuðu myndir af því sem þau sáu í stuttmyndunum með klessulitum.
 
Eldri hópur leiraði sveppi, málaði með vatnslitum og bjuggu til tvenns konar mósaík myndir.