Námskeið í skyndihjálp

Nemendur 9. og 10.bekkjar sóttu í vikunni námskeið í skyndihjálp. Markmið námskeiðsins er kynna nemendur fyrir grunnatriðum skyndihjálpar þannig að þau öðlis lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum. Námskeiðið var bæði bóklegt og verklegt eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Það var Karl Lúðvíksson sem sá um kennsluna og þökkum við honum kærlega fyrir komuna.