Fimmtudaginn 22. október verður opið hús í Höfðaskóla frá kl. 15:00 til 17:00. Við bjóðum foreldra, fjölskyldur og aðra áhugasama hjartanlega velkomna í heimsókn!
Nemendur og starfsfólk skólans hafa tekið höndum saman og undirbúið fjölbreyttar og skemmtilegar stöðvar þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast því skapandi og fjölbreytta starfi sem fram fer innan veggja skólans.
Á opna húsinu verður meðal annars hægt að skoða verkefni sem nemendur hafa unnið að, njóta fjölbreyttrar listsköpunar og taka þátt í skapandi verkefnum.
Ein stöðin verður helguð verkefninu Jól í skókassa, sem Höfðaskóli hefur tekið þátt í. Þar verður verkefnið kynnt og gestum gefst tækifæri til að fræðast um hvernig hægt er að gleðja börn sem búa við erfiðar aðstæður.
Nemendur unglingadeildar munu bjóða upp á nýbakaðar vöfflur til styrktar verkefninu Jól í skókassa. Frjáls framlög verða vel þegin og renna til verkefnisins.
Einnig verður boðið upp á skemmtilega stöð á vegum Skúnaskralls þar sem gestir geta málað og skreytt steina.
Við hvetjum alla til að líta við, skoða afrakstur skólastarfsins, taka þátt í skemmtilegum verkefnum og eiga notalega stund með okkur.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Allir hjartanlega velkomnir!
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla