Öskudagurinn

Það voru draugar, litfagrar prinsessur, nornir og bófar á barnsaldri sem röltu syngjandi frá skólanum í dag í fylgd frístundarstarfsmanna.  Það var síðan líf og fjör þegar börnin mættu í fyrirtæki bæjarins og sungu fyrir starfsfólk og fengu eitthvert góðgæti að launum.  Þau voru  ansi klifjuð af ilmandi gotterí þegar mætt var í frístund að göngu lokinni.