Skólahaldi aflýst á morgun, þriðjudaginn 10.desember, vegna veðurs.

Sæl kæru foreldrar

Að höfðu samráði við björgunarsveitina Strönd og sveitarstjóra hefur verið tekin ákvörðun um að aflýsa skólahaldi á Skagaströnd, á morgun, þriðjudaginn 10. desember.

Ef veruleg breyting verður á spá og stefnt verður að opnun skóla á morgun, fáið þið tölvupóst eða sms skilaboð þess efnis.

Förum varlega og sýnum aðgát!
Kærar kveðjur
Sara Diljá og Guðrún Elsa