Það var einstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir gáfu sér tíma til að líta við, kynna sér fjölbreytt verkefni nemenda og taka þátt í því líflega starfi sem fram fór í skólanum.
Nemendur og starfsfólk lögðu mikinn metnað í undirbúninginn og var gaman að fá tækifæri til að sýna brot af því fjölbreytta og skapandi starfi sem fram fer innan veggja skólans.
Sérstakar þakkir færum við öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum til verkefnisins Jól í skókassa með frjálsum framlögum fyrir vöfflur sem nemendur unglingadeildar buðu upp á. Ef einhver sem komst ekki í gær vill styðja við verkefnið er hægt að leggja inná reikning nemendafélagsins, kt 671088-8599 og reikningsnúmer : 0160-05-060102.
Það er okkur mikils virði að finna þann áhuga og stuðning sem samfélagið sýnir skólastarfinu. Samvinna heimila, skóla og nærsamfélags er mikilvægur þáttur í því að byggja upp öflugt og jákvætt skólasamfélag.
Kærar þakkir fyrir komuna og fyrir að gera daginn svo ánægjulegan!
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla