Þemavinna um geimfara

Nemendur í 3. og 4. bekk hafa í vikunni verið að fræðast um tvo merka geimfara, Neil Armstrong og Mae Jemison.

Í dag fengu nemendur tækifæri til að setja sig í spor vísindamanna og hönnuða þegar þeir bjuggu til eigin geimskip. Þeir klipptu út mismunandi eldflaugar úr pappír, skreyttu þær, gáfu þeim nöfn, teiknuðu geimfara og skrifuðu skilaboð inn í eldflaugarnar. Að lokum fóru nemendur út með kennara þar sem gerð var skemmtileg tilraun með því að blanda saman ediki og matarsóda tókst þeim að láta „geimskipin“ taka á loft. 

Myndir hér