Hefðbundinn íslenskur þorramatur

Í morgunkaffinu í dag fengu allir nemendur skólans tækifæri til að smakka hefðbundinn íslenskan þorramat.

Nemendurnir voru duglegir að stíga út fyrir þægindarammann og smakka á hinum ýmsu kræsingum eins og súrum hrútspungum og hákarli ásamt hinum sígóða harðfisk. Gaman að halda í gamlar hefðir á þorranum. 

Fyrir þá sem vildu eitthvað annað var líka boðið upp á ljúffengan hafragraut, ávexti og brakandi ferska gúrku. 

Myndir af nemendum á yngsta stigi að smakka má sjá hér