Víkingaverkefni í 4. og 5.bekk

Nemendur í 4. og 5. bekk héldu sýningu á víkingaverkefni  sem þau hafa verið að vinna undanfarna daga.  Þau teiknuðu og skreyttu myndir ásamt því að búa til rafbækur sem tengdist víkingum og lífi þeirra. Aðstandendum þeirra ásamt öðrum nemendum skólans var svo boðið á sýninguna. Flottir krakkar og flott verkefni.