Föstudagskveðja á fimmtudegi

Stutt vika að klárast og stutt vika framundan.

Frí á morgun 1. maí og starfsdagur mánudaginn 4.maí, nemendur skólans eru í fríi báða dagana. 

Nemendur hafa verið að leggja lokahönd á verkefni 5. lotu og 6. lota er að hefjast. 

Frétt í Feyki um vísindadag nemenda 10. bekkjar, sjá hér. Frábær dagur þar sem nemendur 10. bekkjar fengu framúrskarandi náttúrufræðikennslu og þjálfun í rökhugsun.  Við þökkum kærlega fyrir okkur.

Nemendur á miðstigi hafa verið að lesa bækurnar "Litla fólkið og stóru draumarnir" og unnið verkefni uppúr þeim, sjá hér. 

Nemendur í 3.-4. bekk hafa verið að læra um himingeiminn og hvernig hægt er að komast þangað, sjá hér.

Skólaráð hefur samþykkt skóladagatal næsta skólaárs, sjá hér. 

Þriðjudaginn 5.maí verður íþróttadagur nemenda á unglingastig í Höfðaskóla, Húnaskóla og Grunnskóla Húnaþings vestra haldinn hér á Skagaströnd. Nemendur skólanna hittast og taka þátt í fjölbreyttum íþróttatengdum stöðvum. Samverunni lýkur á kvöldmat í Fellsborg. 

Fimmtudaginn 7.maí verður íþróttadagur nemenda á miðstigi í Höfðaskóla, Húnaskóla og Grunnskóla Húnaþings vestra haldinn á Hvammstanga. Dagskrá er ekki komin í hús en verður send heim til nemenda og foreldra um leið og liggur fyrir. 

Njótið helgarinnar
Guðrún Elsa og Berglind Hlín