Föstudagskveðja á fimmtudegi fyrir vetrarfrí

Nemendur sungu Þorraþræll (Lag / texti: þjóðlag / Kristján Jónsson)
Nemendur sungu Þorraþræll (Lag / texti: þjóðlag / Kristján Jónsson)

Sæl öll

Vikan sem er að líða var heldur betur fjölbreytt. 

Nemendur fengu tækifæri til að smakka þorramat í kaffitímanum þriðjudaginn sl. Viðbrögðin voru misjöfn, sum sýndu mikið hugrekki og smökkuðu það sem var í boði meðan önnur létu sér nægja að skoða kræsingarnar úr fjarlægð. Frétt ásamt myndum hér.

Síðastliðinn miðvikudag var 1-1-2 dagurinn en hann minnir okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 112. Það er mikilvægt að minna á þetta númer af því þetta er eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð. Við fengum í heimsókn til okkar slökkvilið, lögreglu, sjúkrabíl og björgunarsveit, nemendur fengu að fara út og skoða bílana og spjalla við viðbragðsaðila.Einnig komu í heimskókn Sigrún Líndal og Telma Bjarnadóttir og kynntu, fyrir öllum nemendum skólans, hutverkt sitt sem vettvangsliðar. Við þökkum öllum þeim sem komu að þessum degi kærlega fyrir, ómetanlegt fyrir nemendur skólans að fá að sjá tækjakost sem og hitta viðbragðsaðila og geta spurt spurninga. Myndir frá þessum degi hér.

Í morgun voru nemendur 1. og 2. bekkjar með leiksýningu. Nemendur úr elstu tveim árgöngum leikskólans Barnaból komu á generalprufu kl. 9:00 og svo mættu foreldrar og aðstandendur ásamt mið og unglingastigi skólans kl. 11:00. Frábær sýning hjá krökkunum og allir stóðu sig gríðarlega vel. Myndir frá sýningunni hér.

Nú er framundan vetrarfrí í Höfðaskóla föstu-, mánu- og þriðjudag og kennsla hefst aftur miðvikudaginn 18.febrúar. Þann dag ætlum við að halda upp á öskudaginn, mæta í búningum og gera okkur glaðan dag. Nemendum 1.-4.bekkar stendur til boða að mæta í frístund og fara með hópnum milli fyrirtækja og syngja fyrir nammi. 

Vonandi ná allir að hlaða batterýin og koma hress og spæk úr vetrarfríi.

Með góðum kveðum
Guðrún Elsa og Berglind Hlín