Jólagjöf til Unicef

Nemendur komu saman í kennslustofu og fylgdust með þegar skólastjórinn, Sara Diljá Hjálmarsdóttir, g…
Nemendur komu saman í kennslustofu og fylgdust með þegar skólastjórinn, Sara Diljá Hjálmarsdóttir, gekk frá kaupunum.

Í mörg ár hefur tíðkast hjá nemendum og starfsfólki Höfðaskóla á Skagaströnd að skiptast á gjöfum á litlu jólunum. Allir koma þá með eina gjöf í púkk þar sem dregið er um hvaða pakka hver og einn fær. Í ár var gerð breyting og var óskað eftir að hvert heimili og hver starfsmaður kæmu með 1000 krónur til þess að safna fyrir vatnsdælu hjá Unicef. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og bættust meira að segja nokkrar ömmur og nokkrir afar í hópinn og lögðu málefninu lið. 

Í dag hittust nemendur og starfsfólk skólans í stofu unglingastigs og keyptu sannar gjafir, en samtals söfnuðust 90.500 krónur. Fyrir það gátum við keypt fimm hlý ullarteppi, þrjá fótbolta, þrjá ofurhetjupakka sem innihalda bóluefni, kælibox og hnetumauk og eina vatnsdælu. 

Við viljum þakka öllum þeim sem lögðu til pening í söfnunina, án ykkar hefði þetta ekki orðið að veruleika. Það er dýrmætt að sjá samfélagið okkar standa saman í svona söfnun, hún kennir börnunum okkar allra svo margt.

Við hvetjum að lokum alla til að kynna sér starfsemi Unicef og sannar gjafir hjá þeim https://sannargjafir.is/ 

Gleðileg jól
Sara Diljá og Guðrún Elsa - stjórnendur Höfðaskóla.