Síðasta föstudagskveðja skólaársins

Þá er síðasta heila skólavikan að renna sitt skeið og óhætt að segja að veðrið hafi leikið við okkur þrátt fyrir smá rigningu í dag. Nemendur hafa verið að ljúka við ýmis námsmats verkefni samhliða annarri vinnu. 

Á heimasíðunni okkar finnið þið fullt af fréttum allar vikur þar sem við segjum frá því helsta sem við erum að gera og við hvetjum ykkur til að vera dugleg að fylgjast þar með.

Í næstu viku er örlítil breyting á dagskrá og svo skólaslit á miðvikudag. 

Á mánudag er hefðbundin kennsla frá 8:20-12:00. Engin kennsla eftir hádegi en frístund með hefðbundnu sniði.

Á þriðjudag er hefðbundin kennsla og frágangur frá 8:20-10:00. Klukkan 10 ætlum við svo að skella okkur í siglingu á Húnabjörginni og brjóta aðeins upp daginn. Engin kennsla eftir hádegi en frístund með hefðbundnu sniði. 

Á miðvikudag er flippíþróttadagur og önnur skemmtun frá 8:20-12:00. Við ljúkum skóladeginum á pylsugrilli hér í skólanum en svo er hvorki kennsla né frístund eftir hádegi. Skólaslitin okkar fara fram í Hólaneskirkju þennan dag kl. 14:00.

Við vonum að þið njótið helgarinnar og við hlökkum til síðustu daganna með nemendum eftir helgi.
Með góðum kveðjum
Sara Diljá, Guðrún Elsa og Berglind Hlín