Fréttir

Míla umburðarlyndis og föstudagskveðja

Heil og sæl Það var aldeilis margt um að vera hjá okkur í vikunni. Nemendur á miðstigi saumuðu sér svuntur í textílmennt og má sjá myndir frá því hér. Nemendur á yngsta stigi fóru í útikennslu í stærðfræðitíma að læra um form, fjölda og stærðir og má sjá myndir úr þeim skemmtilega tíma hér. Þá voru nemendur í 7.-10. bekk með sitt árlega draugahús í félagsmiðstöðinni sem var virkilega skemmtilegt að heimsækja, hræðilegt en frábært :) Þá voru nemendur í 8.-10. bekk í sjónlista viku, við fengum frábæra gjöf frá Hertz en allt þetta má sjá í fréttum á heimasíðunni okkar. Í dag gengum við svo eina mílu saman í tilefni dags umburðarlyndis. Leiðtogi göngunnar í ár var Rögnvaldur Mar Í. Ragnarsson og stóð hann sig með stakri prýði. Í næstu viku kemur Skáld í skólum í heimsókn til nemenda á yngsta stig og eitt og annað skemmtilegt verður brallað. Við færumst nær og nær jólum og því er kjörið að fara að ræða tilvist jólasveinanna okkar við börnin og leggja áherslu á að trúin flytur fjöll og við berum virðingu fyrir því hverju aðrir trúa eða trúa ekki og ræðum það ekki innan veggja skólans :) Lítil eyru heyra ótrúlegustu hluti. Við vonum að þið njótið helgarinnar Með góðum kveðjum Sara Diljá, Guðrún Elsa og Berglind Hlín
Lesa meira

Gjöf frá HERTZ

Í haust hafa nemendur í nemendafélagi Höfðaskóla leitað á náðir nokkurra fyrirtækja um styrk til að efla tækniþróun Höfðaskóla enn frekar. Markmið okkar er að vera með nægilega marga ipada á yngsta stigi svo hver nemandi geti verið með eitt stykki og verða tækin notuð við kennslu, fyrst og fremst í lestri og stærðfræði. Við þökkum HERTZ kærlega fyrir þessa góðu gjöf sem mun koma sér virkilega vel. - Nemendafélag Höfðaskóla
Lesa meira

Sjónlistir á unglingastigi

Nemendur í 8.-10. bekk eru í list- og verkgreinaviku þessa dagana og er áherslan núna á sjónlistir. Þau hafa verið að mála og vinna verkefni um listasögu og listamenn ásamt því að þau heimsóttu NES listamiðstöð þar sem þau æfðu sig í grafík list. Myndirnar eru unnar með því að rista í t.d. línóleum dúk og síðan er málað á dúkinn og myndinni þrykkt á pappír. Með þessari aðferð er hægt að þrykkja mörg eintök af sömu myndinni. Enn og aftur njótum við góðs af samstarfinu okkar við NES og erum heppin að hafa slíka aðstöðu hér á svæðinu. Myndir hér.
Lesa meira

Jól í skókassa

Þátttaka nemenda í verkefninu jól í skókassa gekk vonum framar og náðu nemendur og starfsfólk að útbúa 24 kassa. Við stefnum að því að hafa þetta árlegt samvinnuverkefni hjá okkur og hlökkum til að þróa verkefnið áfram. Nokkrar myndir hér.
Lesa meira

Ritun á yngsta stigi

Nemendur á yngsta stigi unnu skemmtilegt ritunarverkefni í morgun. Þau skoðuðu myndir og skrifuðu á miða upplýsingar um það sem þau sáu á myndunum. Eftir að allir voru búnir að skrifa á miða sköpuðust skemmtilegar umræður.
Lesa meira

Föstudagskveðja

Heil og sæl Vikan var svo sannarlega stutt hjá okkur, aðeins þrír skóladagar eftir gott vetrarfrí. Á öllum námsstigum mátti sjá hinar ýmsu kynjaverur á hrekkjavökunni og nemendur skemmtu sér konunglega. Í næstu viku verða list og verkgreinadagar hjá nemendum 8.-10.bekkjar þar sem þeir fá að fara í Nes listamiðstöð. Þema þessara daga eru sjónlistir með áherslu á mismunandi aðferðir við myndsköpun og listasögu. Nú engin sundkennsla fyrr en á nýju ári og minnum við á að nemendur fara núna í íþróttir á þeim tíma sem áður var sund og skiptir þá máli að vera með íþróttaföt á þeim dögum. Það er orðið ansi kalt úti og þurfa nemendur að vera klæddir í takt við veðrið og gott getur verið að hafa auka vettlinga og sokka í skólatöskunni. Í Höfðaskóla er margt skemmtilegt um að vera og við hvetjum ykkur til að kíkja við hjá okkur ef þið viljið fræðast um starfið okkar eða sjá hvað nemendur eru að kljást við. Skólinn er hjartað í samfélaginu og við eigum að standa sameiginlega vörð um hann og hafa umræðu um skólamál jákvæða og uppbyggilega. Við vonum að þið njótið helgarinnar Með góðum kveðjum Sara Diljá og Guðrún Elsa
Lesa meira

Kveðja fyrir vetrarfrí

Heil og sæl Stutt vika hjá okkur núna þar sem vetrarfrí er framundan fimmtudag, föstudag, mánudag og þriðjudag. Vikan hefur gengið vel og ýmislegt verið brallað. Nemendur á yngsta stigi voru í útikennslu í snjónum í gær. Myndir hér. Í næstu viku verður Halloween og þá verður margt skemmtilegt að gerast. Á miðvikudag geta nemendur í 5.- 10. bekk og aðrir bæjarbúar farið í draugahús í félagsmiðstöðinni og nemendur yngsta stigs geta svo heimsótt draugahúsið á fimmtudag. Þá ætla einhver að ganga í hús og biðja um grikk eða gott og við vonum að öll taki vel á móti krökkunum. Fimmtudaginn 31. október verður í boði að koma í búningum í skólann. Við vonum að þið njótið daganna framundan Við sjáumst hress og kát á miðvikudag Með góðum kveðjum Sara Diljá, Guðrún Elsa og Berglind Hlín
Lesa meira

Föstudagskveðja

Heil og sæl kæra skólasamfélag Vikan í Höfðaskóla gekk vel, nemendur unnu ýmis verkefni bæði innandyra og utan. Nú er farið að verða kalt úti og minnum við mikilvægi þess að nemendur séu klæddir eftir veðri og að endurskinsmerkin séu á sínum stað. Foreldrafélagið hélt aðalfund s.l. mánudag og var mætingin ekki nógu góð. Foreldrasamstarf er mikilvægur hluti af skólastarfi og hlutverk foreldrafélags er að styðja við skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimilis og skóla. Öll sem eiga börn í Höfðaskóla eru hluti af foreldrafélaginu þó stjórnin sé fámenn. Foreldrafélagið skiptir máli og við vonum að við getum öll látið félagið skipta okkur máli. Miðvikudaginn 23. október n.k. verður bleikur dagur í Höfðaskóla. Á vef Krabbameinsfélagsins segir: Á Bleika deginum hvetjum við landsmenn til að vera bleik - fyrir okkur öll bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu. Næsta vika verður stutt í annan endan þar sem vetrarfrí verður í Höfðaskóla 24., 25. og 28. október. Við vonum að þið njótið helgarinnar Með góðum kveðjum Sara Diljá, Guðrún Elsa og Berglind Hlín
Lesa meira

Nemendur á yngsta stigi í fuglaskoðunarferð

Nemendur á yngsta stigi skelltu sér í gögnuferð þar sem þau skoðuðu fugla og nutu veðurblíðunnar. Myndir hér.
Lesa meira

Föstudagskveðja

Heil og sæl Í gær voru menntabúðir og opið hús hjá okkur í Höfðaskóla og þökkum við öllum sem komu við kærlega fyrir komuna. Nemendur sýndu og kynntu ýmis verkefni og það er alltaf gaman að leyfa gestum og gangandi að sjá hvað nemendur eru að fást við. Nemendur í sjónlistum hjá Kristbjörgu hafa verið að vinna með form og munstur og gerðu margar skemmtilegar myndir eins og sjá má hér til hliðar. Aðalfundur foreldrafélagsins verður mánudaginn n.k. kl. 20:00 í Höfðaskóla. Við hvetjum öll til að mæta. Foreldrasamstarf skiptir mikllu máli og við þurfum að efla foreldrafélagið okkar enn frekar. Tökum höndum saman og fjölmennum á fundinn. Núna er aldeilis farið að kólna og við biðjum ykkur um að passa uppá að börnin fari vel klædd í skólann og að strigaskórnir fari í frí og kuldaskórnir taki við. Einnig væri frábært, ef nemendur, sérstaklega á yngsti stigi, væru með auka sokkapar í töskunni. Við vonum að þið njótið helgarinnar Með góðum kveðjum Sara Diljá, Guðrún Elsa og Berglind Hlín
Lesa meira