Fréttir

Föstudagskveðja

Sæl öll Í vikunni var ýmislegt brallað, ný valgrein hófst á unglingastigi og nú fara allir í 8.-10.bekk í leiklist. Nemendur á unglingastigi hafa lesið Gunnlaugs sögu ormstungu. Það hefur verið gaman að fylgjast með nemendum rýna í þennan merka bókmenntaarf. Það er ekki sjálfgefið að takast á við fornt málfar og fornar hefðir en nemendur hafa sýnt að þau búa yfir góðum skilningi og getu til að setja söguna í samhengi við nútímann. Nemendur í 1. og 2. bekk héldu upp á afmæli Blæs en Blær er táknmynd Vináttu sem er forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti. Hann minnir okkur á gildi Vináttu, veitir huggun og er hvatning til barnanna að tjá sig og segja sínar skoðanir. Dagurinn hófst á skapandi nótum þar sem krakkarnir útbjuggu fallegar myndir af Blæ, kórónur og skrautlegar grímur. Sköpunargleðin var í fyrirrúmi og andrúmsloftið fyllt eftirvæntingu. Eins og í öllum góðum veislum var svo gætt sér á ljúffengum kökubita í lokin. Þetta var notaleg samverustund þar sem nemendur sýndu bangsanum sínum mikla hlýju og vináttu og sköpunargleðin réð ríkjum. Í næstu viku byrjum við á skipulagsdegi og svo eru foreldraviðtöl á þriðjudaginn. Foreldrar skrá sig sjálf í viðtölin á namfus.is en geta líka haft samband við skólann og beðið um aðstoð við skráningu. Áfram Ísland HÚH Með góðri kveðju Guðrún Elsa og Berglind Hlín
Lesa meira

Föstudagskveðja

Sæl öll Tíminn líður á ógnarhraða og framundan er síðasta vika janúarmánaðar. Bóndadagurinn er í dag sem markar upphaf þorra. Stúlkurnar í 1.-7.bekk steiktu vöfflur í tilefni dagsins. Vöfflurnar snæddu þær ásamt drengjunum í kaffitímanum. Myndir hér. Ný námslota hófst í vikunni og er þema hennar þorrinn, hefðir og valdatafl. Inn í þetta fléttast einnig hjálpsemi og sjálfbærni. Námsvísir skólans hefur að geyma allar kennsluáætlanir lotunnar og hægt er að nálgast þær hér. Gott er fyrir foreldra að hafa í huga að það er skipulagsdagur, viðtalsdagur og vetrarfrí í febrúar, nánari upplýsingar um dagsetningar á þeim dögum er hægt að sjá á forsíðu heimasíðu skólans, viðburðalisti. Við höldum áfram að njóta veðursins. Áfram Ísland Með góðri kveðju Guðrún Elsa og Berglind Hlín
Lesa meira

Föstudagskveðja

Vikan í Höfðaskóla gekk vel og allt í einu er janúar hálfnaður. Við erum að lestrarprófa alla nemendur skólans í þessari viku og næstu. Niðurstöður verða svo kynntar í foreldraviðtölum 3.febrúar næstkomandi. Þriðju námslotu skólaársins er að ljúka og er nýtt námsmat að detta inn hjá nemendum skólans. Námsvísir verður svo uppfærður á miðvikudaginn í næstu viku og er þá hægt að sjá skipulag fjórðu námslotu skólans. Fram að jólum fóru allir nemendur skólans í útikennslu með Berglindi Sólrós en núna fara þau í listir hjá Kristbjörgu Dúfu, myndir af fyrstu verkefnum yngsta stigs eru hér. Vegna síbreytilegra veðurskilyrða viljum við minna á mikilvægi þess að nemendur séu vel búnir fyrir útiveru. Við mælum sérstaklega með því að hafa auka sokkapar í töskunni, þar sem blaut föt geta haft áhrif á líðan barnanna yfir skóladaginn. Með góðum kveðjum Guðrún Elsa og Berglind Hlín
Lesa meira

Vettvangsheimsókn á kvikmyndabraut FNV á Sauðárkróki

Í dag fóru nemendur í kvikmyndavali í vettvangsheimsókn á kvikmyndabraut FNV á Sauðárkróki. Þar fengu þau kynningu á náminu og því hvernig kennslan er skipulögð frá Árna Gunnarssyni. Hann sagði frá því hvaða möguleikar standa nemendum til boða að loknu námi, bæði varðandi áframhaldandi nám og störf á sviði kvikmyndagerðar og tengdra greina. Að auki sýndi hann nemendum aðstöðuna og búnaðinn sem notaður er í kennslunni. Ferðin heppnaðist vel og nemendur voru ánægðir með heimsóknina. Við þökkum kærlega fyrir móttökurnar.
Lesa meira

Fyrsta föstudagskveðjan árið 2026

Heil og sæl og gleðilegt nýtt ár. Það var afskaplega skemmtilegt að hitta nemendur aftur eftir gott jólafrí. Vikan gekk vel og mættu nemendur flest öll tilbúin til að takast á við amstur hversdagsins. Berglind Sólrós vann sinn síðasta dag í Höfðaskóla og þökkum við henni kærlega fyrir samstarfið sl. ár. Í næstu viku, 16.janúar, líkur lotu þrjú og vænta má þá námsmats í kjölfarið. Við minnum á að mikilvægt er að nemendur komi vel klæddir í skólann. Gott er að hafa auka par af sokkum með í skólatöskunni. Með góðum kveðjum Guðrún Elsa og Berglind Hlín
Lesa meira

Föstudagskveðja fyrir jólafrí

Í gær var síðasti skóladagur ársins sem endaði á skemmtilegri stund þegar litlu jólin voru haldin með hátíðarbrag í Fellsborg. Um morguninn voru nemendur með sínum umsjónarkennurum og brölluðu ýmislegt skemmtilegt. Við fórum svo öll saman í hádeginu og borðuðum möndlugrautinn. Seinnipartinn mættum við svo aftur prúðbúin, áttum góða stund þar sem Esme og Kristín voru búnar að undirbúa dásamlegan hátíðarkvöldverð og dagurinn endaði svo á jólaballi, þar sem Hugrún Sif leiddi söng og dans. Nemendur héldu svo í jólafrí og mæta aftur í skólann mánudaginn 5. janúar 2026 kl. 8:20. Höfðaskóli þakkar starfsfólki, nemendum og öllum sem komu að máli og gerðu þessa stund hátíðlega. Myndir hér.
Lesa meira

Nemendur 10.bekkjar skreyttu jólatréð í Fellsborg

Það er rótgróin hefð í Höfðaskóla að nemendur 10. bekkjar skreyti jólatréð sem síðan er dansað í kringum á litlu jólunum. Í ár var það árgangur 2010, sem leysti þetta verkefni af stakri prýði. Að þeirra mati hefur vart sést jafn vel skreytt jólatré áður. Myndir hér
Lesa meira

Litlu jólin

Á morgun, fimmtudaginn 18.des, er síðasti skóladagurinn fyrir jólafrí. Nemendur verða með sínum umsjónarkennurum frá 9:00-12:00. Allir borða saman möndlugraut í hádeginu í Fellsborg. Frístund verður með hefðbundnu sniði eftir hádegi og svo hefjast litlu jólin í Fellsborg kl. 17:00 þar sem við borðum hátíðarkvöldverð og dönsum kringum jólatréð. Eftir það halda nemendur og starfsfólk í jólafrí.
Lesa meira

Föstudagskveðja

Vikan í Höfðaskóla var lífleg og skemmtileg og margt um að vera. Næsta vika er síðasta vikan fyrir jólafrí, en hún er stutt í annan endan þar sem litlu jólin okkar eru 18. desember og nemendur fara í jólafrí eftir þau. Á þriðjudaginn verða jólaföndurstöðvar í skólanum frá kl. 10:00-12:00 og einnig verður boðið uppá piparkökur og heitt kakó. Á miðvikudag ætla nemendur okkar í 10. bekk að skreyta jólatréð okkar í Fellsborg. Fimmtudaginn 18.desember ætlum við að syngja saman jólalög, eiga notalega stund í stofum með umsjónarkennurum og fara svo öll saman í möndlugraut upp í Fellsborg í hádeginu. Engin kennsla eftir hádegi en frístund með hefðbundnu sniði. Litlu jólin hefjast svo 18. desember kl. 17:00 og mæta nemendur í Fellsborg en þar ætlum við að borða saman hátíðarkvöldverð í og dansa í kringum jólatréð en Hugrún Sif ætlar að leiða jólasönginn. Þetta er annað árið Þar sem litlu jólin eru með þessu sniði og viljum við biðja nemendur um að mæta prúðbúin og snyrtileg svo stundin verði jafn hátíðleg og í fyrra. Litlu jólunum lýkur svo um kl. 19:00 og þá halda nemendur heim í jólafrí. Að lokum minnum við á að foreldrar og forráðamenn eru alltaf velkomin í heimsókn til okkar, ekki þarf að gera boð á undan sér. Hvort sem það er til að kíkja í kaffibolla eða sjá það sem nemendur eru að fást við. Með góðum kveðjum Guðrún Elsa og Berglind Hlín
Lesa meira

Útikennsla á aðventunni

Yngsta stig skelltu sér í fína útiveru þrátt fyrir rok. Jörðin er auð eins og er og nokkur voru vel moldug eftir fjörið. Þau léku sér að því að beisla vindinn með pokum í bandi. Oft er það einfalda sem gleður hvað mest og gott er að muna það í aðdraganda jólanna.
Lesa meira